- Var að koma heim frá Kína. Við og við er mikilvægt að taka lestina yfir landamærin og þakka Guði fyrir að hafa parkerað mér í Hong Kong en ekki hinum megin við þar sem mengunin er verri, hávaðinn meiri, fólkið svikulla og veröldin kínverskari. Tækifærissinninn sem ég er, finnst mér nú samt gaman að skreppa og notfæra mér lágt vöruverð og uppbyggilega þjónustu. Að þessu sinni gistum við eina nótt og tókum því rólega í stað kapphlaupsins sem oft vill einkenna Shenzen ferðirnar. Ég lét sauma á mig bikini, jakka og topp, keypti mér 5 töskur (ég er sjúk í veski og töskur, Bjarki bróðir getur vitnað um það), keypti mér annan jakka og peysu, lá í nuddi í 3 klukkustundir. Tærnar eru nú vel trítaðar, með lakk á hverri nögl og siggið með öllu horfið. Herlegheitin kostuðu undir 10þúsund kalli.
- Ég olli fjaðrafoki hjá skraddaranum. Það hafði ég ekki hugsað mikið út í þegar ég keypti efni í bikini heima á Íslandi að Kínverjar eru spéhræddir og hinn almenni klæðskeri kannski ekki oft beðinn um að sníða nærfatnað. Ég vildi hafa spöng í haldaranum og hafði reyndar grunað að það gæti orðið að vandamáli. Bekkan deyr ekki ráðalaus, heldur fór með einn lúinn haldara með sér yfir og slengdi honum á borðið þegar hann var hálfnaður með ræðuna um að geta bara ekki gert á mig bikini þar sem hann hefði engin járnin til að halda júllunum uppi. Um mig var farinn að myndast hringur af áhorfendum sem gerðu lítið sem ekkert til að fela undrun/hneykslun/skemmtun sína þegar ég dró upp laslegt nærhaldið. Karlgreyið starði bara á gulnaðar blúndurnar og gerði sig alls ekki líklegan til að snerta á þeim til að klippa úr þeim spangirnar. Ég leyfði honum að kveljast í hæfilegar 5 sekúndur áður en ég af kvenlegri röggsemi tók af honum skærin og klippti allt í sundur sjálf. Ekki tók þá betra við, hann vildi ekkert mæla fyrir neinu. Ég var með mynd af bikinibuxum sem ég girntist en til útskýringa á haldaranum hafði ég tekið með mér tvo bikinitoppa. Hann jammaði og jáaði og þóttist allt skilja. Ég sá það strax að líklega hefði verið gáfulegra að eyða peningunum í fjöldaframleidda vöru úr M&S en þarna var ég komin og af þrjósku heimtaði að hann reyndi nú allavega sitt besta. Borgaði honum margar spírur fyrir þetta vandræðalega verk sem fyrir höndum var og sagðist koma aftur á morgun. "Viltu að ég skilji bikinibuxurnar eftir svo þú sjáir hvaða stærð ég nota?" "No. Absolutely." Úttútnuð æðin á enninu gaf til kynna þjáningar hans.
- Nóttin á hótelinu var hin ágætasta þótt rúmin sem auglýst voru með "spring box matress" voru líklega meira svona "box" bara. Engir voru gormarnir og lítill munur á að sofa á gólfinu eða á hörðum beddanum. En ódýrt var það. :) Ég fór í fótsnyrtingu og tveggja tíma heilnudd þar sem ommiletta og lemon tea var innifalin í trítmentinu. Nokkuð sérstakar heildarlausnir í boði á sumum stöðum.... Ég var því vel upplögð þegar ég skundaði aftur á fund skraddarans. Þar var jakkinn tilbúinn og nokkuð glæsilegur bara (ég hannaði hann sjálf). Skiptir þar engu þótt hann sé ekki í minni stærð, ég hef aldrei verið smámunasöm. Bikinið var öllu verra. Víðáttumiklar bikinibuxurnar urðu þess valdandi að ég fór að leita að spegli til að sjá með eigin augum hversu stór á mér afturendinn virkilega er. Ég ákvað eftir stutta sjálfsskoðun að klæðskerinn hefði ekki réttstillt auga fyrir mínum stinna vestræna rassi og heimtaði að hann endurgerði allt saman. Til að sýna honum fáránleikann blátt á appelsínugulu (appelsínugular nærur, blátt bikini), fór ég í bikiniið og vippaði mér út fyrir mátunarklefann. Enn á ný safnaðist saman áhorfendaskari. Þarna stóð ég í öllu mínu appelsínuhúðarveldi, með Bond buxurnar reyrðar upp í skoruna og bikini buxurnar lafandi langleiðina niður að hnjám. Fyrirskipaði að úr klofbótinni skyldu 4 þumlungar klipptir burt og ef efni væri til, mætti hann gjarnan gera rasspartinn lítið eitt efnismeiri. "Dont have enough material" sagði hann en upphaflega hafði hann úr 0.50mX1.2m stykki að sníða. Ég lét þetta gott heita enda búin að tjúna mig svo mikið upp á ný að líklega hefði mér ekki veitt af klukkutíma nuddi í viðbót. Bikinið var svo tilbúið klukkutíma síðar og er satt best að segja nokkuð snoturt. Ég þarf bara að minnka á mér rassinn.....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli