- Húki hér í hor mínum, sárlasin. Hulda systir fær sadíska útrás fyrir að leika hjúkku (sem hún er). Eftir heilan dag af stunum og snörli fór hún í miklum rassaköstum inn í næsta apótek og kom með eitthvað japanskt út. Ég hef alla tíð haft ógeð á meðulum, pillum og smyrslum svo ég undirbjó mig með ælupoka í rúminu þegar mér var ljóst að hún ætlaði sér ekki burt fyrr en ég væri stíflulaus og hressari. Eftir ógeðfelldar aðfarir var ég búin að kúgast, gubba og skæla heil ósköp en er jú satt best að segja, nokkuð stíflulaus. Ég finn hins vegar bragð af meðalinu aftast í kokinu og úfurinn minnir á tilvist sína með sviða. Ég er svöng en vill ekkert borða, sveitt en með kuldahroll, ómöguleg í alla staði.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli