- Árið 2004 fór ég að kalla Hong Kong “heim”
- Árið 2004 eyddi ég sumrinu á Íslandi
- Árið 2004 bjó ég á 5 mismunandi stöðum, Kennedy Town, Álfhólsvegi, Langholtsvegi, Skólavörðustíg og Robinson Road
- Árið 2004 sveik ég ekki undan skatti
- Árið 2004 fór ég stundum tvisvar í bíó á sömu myndina
- Árið 2004 elskaði ég mann sem elskaði aðra og allt annar elskaði mig
- Árið 2004 var ég “second most developed rugby player” hjá Aberdeen
- Árið 2004 hafði ég enga fasta vinnu eða búsetu
- Árið 2004 var ég bæði brúnhærð og ljóshærð, var stuttklippt og náði í stert
- Árið 2004 var Bon Jovi enn uppáhalds hljómsveitin mín
- Árið 2004 sagði pabbi upp hjá Fjallalambi og mamma flutti til Ísafjarðar
- Árið 2004 fór ég til Kópaskers í fyrsta skipti í 4 ½ ár
- Árið 2004 skoraði ég tvö mörk í rúgbý, hvorugt fyrir mitt eigið lið
- Árið 2004 missti ég náinn vin sem ég sakna sárt
- Árið 2004 eignaðist ég litla nöfnu, Rebekku Hrönn Eldjárn
- Árið 2004 skildu Brynja og Bubbi
- Árið 2004 kleif ég Ben Lomond í Nýja Sjálandi
- Árið 2004 át ég kengúru og risahumar, fylltan krabba og dim sum
- Árið 2004 sprengdi ég heimildina á vísakortinu 3x
- Árið 2004 hækkaði ég líftrygginguna
- Árið 2004 fór ég í bakpokaferðalag
- Árið 2004 hlaut “where is the love” mesta spilun í geislaspilaranum mínum
- Árið 2004 fór ég í fyrsta skipti á Þjóðhátíð í Eyjum
- Árið 2004 eyði ég jólunum í Hong Kong
- Árið 2004 fór ég í nammibindindi 4x
- Árið 2004 var ég ólöglegur innflytjandi
- Árið 2004 gleymdi ég öllum afmælisdögum barna vina minna
- Árið 2004 vann ég verðlaun fyrir heitasta búninginn á hrekkjavökunni
- Árið 2004 kaus ég í fyrsta skipti
- Árið 2004 fór ég í fyrsta skipti í brúðkaup þar sem brúðurin var ekki systir mín
- Árið 2004 keypti ég miða á kjötkveðjuhátíðina í Ríó 2005
- Árið 2004 fór ég til spákonu og drakk kaffi
- Árið 2004 var mér meinaður aðgangur í Húsafell og kvartaði við fjölmiðla
- Árið 2004 fékk ég heilahristing og glóðuraugu (2)
- Árið 2004 lá ég á spítala í fyrsta skipti í lífinu
- Árið 2004 varð ég heltekin af Beckham hjónunum og Jonny Wilkinson
- Árið 2004 var ég rekald í lífsins ólgusjó, stefnulaus rolla í móa
- Árið 2004 hitti ég bróður minn í 4 daga
- Árið 2004 spönnuðu ferðalög mín 123 breiddargráður og lengsta ferðalagið var 5 1/2 vikna langt
- Árið 2004 kláraði ég allar blaðsíðurnar í 4ra ára gömlu vegabréfinu mínu
- Árið 2004 var gott ár
Engin ummæli:
Skrifa ummæli