sunnudagur, janúar 23, 2005

  1. Bróðirinn í heimsókn í Hong Kong. Fór nokkra krókaleið að þessu sinni eða frá Melbourne til Sydney (ófyrirséð stopp, vélin missti pressu og allir fengu súrefnisgrímu), þaðan til Guangzhou og áfram upp til Shanghai þar sem stoppað var í nokkra daga. Þá aftur niður til Guangzhou og með lest til HK. Búið að eyða nokkrum góðum stundum saman við át og spjall, markaðsferðir og fleira. Ég fórnaði föstudagskveldi á bænum fyrir fjölskyldustund uppi í Sai Kung þar sem Hulda systir á heima. Mætti á svæðið og systirin vippaði fram mexíkönskum mat. Boðið upp á rauðvín og hvítvín með matnum og allir drukku glaðir nema ég og börnin. Innan skamms var systirin komin með glær augu og Steindór farinn að hlægja að eigin fyndni. Ég sá að stutt yrði í endirinn á þessu kvöldi. Komin í spilagírinn beið ég eftir að systkinin litu upp úr Tinna og félögum sem voru í vídeóinu hjá börnunum en Steindór datt út 20 mínútum eftir síðasta rauðvínssopann eins og fyrirséð var. Þegar ekkert hafði heyrst frá þeim í langan tíma vissi ég að allir væru sofnaðir nema ég og hundurinn.
  2. Ekki er það nú innstillt í mína líffræðilegu klukku að sofna fyrir miðnætti á föstudögum svo ég sat við skriftir og fleira uppbyggilegt þar til Bjarki vaknaði samanrekinn eftir óþægilega legu í koju 6 ára frænku sinnar. Við spiluðum um stund þar til Hulda vaknaði við símtal um miðja nótt en þegar búið var að tryggja farsæla fæðingu í gegnum símann kom hún fram til okkar Bjarka og spjallaði fram undir morgunn. Ég vaknaði því blessunarlega þreytt á laugardegi eins og lög gera ráð fyrir.
  3. Enginn var rúgbýleikurinn þessa helgina þar sem við duttum úr keppni eftir síðustu helgi. Ég fór því á markaðinn með Huldu, Bjarka og Starra og verslaði gjafir og fleira fyrir alla heima en ég hygg á Íslandsskrepp í næstu viku. Er í nammibindindi sem fyrst reynir á þegar ég er komin í návígi við Freyju draum og lakkrísbombur. Þeir sem vilja hitta mig er bent á að hringja í 6623012 eftir klukkan 6 á miðvikudag eða skilja eftir skilaboð í kommentaformi á þessari síðu.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli