mánudagur, ágúst 27, 2007

Traustur vinur

Ég á feikimarga vini og kunningja. Ég safna þessu eins og frímerkjunum forðum og hugsa ekki alltaf nógu vel um alla. Rétt eins og frímerkin sem nú eru öll týnd eða einhverjum gefin - ekki samt tröllum. Nú sligar það samviskuna að :

- Íris vinkona er búin að gifta sig og ég ekki búin að óska henni til hamingju.
- Hugrún vinkona er búin að eignast stelpu og ég er ekki enn búin að hringja í hana
- Rebekka litla nafna mín átti afmæli um síðustu helgi og ég ekki enn búin að hringja í hana
- Gunnhildur vinkona er ólétt og ég hef ekkert fylgst með framvindu bumbunnar eða sálarheill óléttrar framakonu
- Heiða mín á nú færeyskan fylgdarmann sem ég hef enn ekki gert grín að
- Óli minn á von á barni en suma daga bara gleymi ég því

Mikið vona ég að allir þessir eigi fleiri vini en mig sem eru aðeins þjálli í samskiptum.
Knús til allra xxx

Engin ummæli:

Skrifa ummæli