fimmtudagur, ágúst 30, 2007

Business development

Titillinn minn er Business Development Manager. Svo í dag sagði bossinn minn við okkur developerana að við ættum að finna viðskipti í nýjum löndum. Hann setti Sri Lanka, Mongólíu, Brunei, Kambódíu og Bangladesh í hatt og ég dró Bangladesh. Hann fékk Mongólíu sjálfur - hahaha! Ég man þegar ég var krakki og það var vinsælt að segja í fyrirlitningartón: "Ertu mongólíti?" Það var rétt á eftir að það var úrelt að segja "Ert´eikkað vangefin?" Nú kemst ég að því að ég hafði aldrei hugmynd um hvað mongólíti er en get ekki annað en velt fyrir mér hvort það sé fólk frá Mongólíu. Svör óskast.

Ég fer nú mjög reglulega til Kóreu - og er líklega skemmd af kjarnorku.
Til Indónesíu - ábyggilega með fuglaflensu.
Singapore - þar sem allt er gott og ég ætla að búa næst.

og nú Bangladesh. Ég óska mér að fá flotholt og björgunarvesti í jólagjöf.

Við gríntumst með það systurnar í gær að ef við færumst væru líklega engir hæfari til að hafa upp á líkinu en ferðaskrifstofurnar í Hong Kong. Það er ekki fyrir nokkurn heilvita ættingja að fylgjast með þessu rassakasti um allar álfur.

Boston og 5 lönd Evrópu í október, hugsanlegt ég hendist heim yfir laugardagsnótt ef einhver eldar læri.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli