miðvikudagur, apríl 13, 2005

Þéttskipuð dagskrá

Nú er það þétt.

Ég kvartaði fyrir stuttu yfir að fáir hringdu og viðbrögðin láta ekki standa á sér. Nema hvað allir hafa bókað ferð hingað út!!

Eftir viku kemur Óli Óla úr flugumsjóninni Flugfélags Íslands. Hann verður hér á sama tíma og pabbi sem er á leiðinni aftur í 3ja vikna heimsókn enda svo voða gott að vera í Hong Kong. Hann fer 14.maí og mætir Petru systur í loftinu sem leggur af stað á sama tíma frá London. Með henni í för eru Marinó kærasti hennar og María Lapas, ofurflugfreyja. Þau fara öll þann 24ða og líklega rétt ná að smella einum á Elfu frænku, hennar mann og strákana tvo í Leifsstöð en þau leggja af stað 25.maí og verða í þrjár vikur.
Bjarki bróðir og hans spúsa eru þá væntanleg 3 dögum seinna á leið sinni heim til Evrópu eftir námið í Ástralíu. Allir eru þá farnir 10.júní og Freyjan og Starri í þokkabót. Hrædd um að það verði ansi tómlegt í Hong Kong eftir þessa törn en til að koma í veg fyrir aðgerðaleysi er stefnan sett á Tæland í júní að hitta Gunnhildi, Björn og vinapar þeirra. Ágúst er þéttskipaður ferðalögum nú þegar og í september koma Finna mín (öll fjölskyldan kallar hana það eftir stutt ástarævintýri með Bjarka bróður sumarið 1995), Kristbjörg læknisins og Ólöf Elsa.

Nú er spurningin hvað ég á af mér að gera í júlí!!??!?

R.

ps. 43 missed calls frá Ricky þrátt fyrir "góðlátleg" tilmæli um að hringja ekki oftar.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli