mánudagur, apríl 11, 2005

Fátt er títt en mér rennur blóðið til skyldunnar við bloggstörf. Ekki má nú vanrækja dyggan stuðningshópinn :)

Ég er komin með stalker. Hann heitir Ricky Hui og er kínverskur. Hann kom upp að mér og vinkonu minni þar sem við sátum á pöbb og horfðum á rúgbý, spurði hvort hann mætti setjast. Hér er það ekki tiltökumál þótt margir ókunnugir sitji til borðs með þér hvort sem um McDonalds eða pöbb er að ræða svo ég ætlaði nú ekki að fara að takmarka ferðir þessa vesalings. Þegar ég jánkaði spurði hann mig blíðmæltur hvort hann mætti vera vinur minn. Huh? Eeeeh....jaaa.....huh? Æ vont tú prakktiss mæ íngelísh. Jaaaá, ég skil, já já, við skulum bara vera vinir. Hann lyftist í sætinu af gleði. Spurði Chrissy sömu spurningar og hún brosti blíðlega til baka og játti.

Síðan hefur hann hringt mörgum sinnum á dag. Ég er búin að segja honum að ég eigi afar afbrýðissaman kærasta sem kæri sig ekki um að ég tali við aðra karlmenn. But it is only for language exchange, I teach you Cantonese segir Ricky blíðlega og stingur því næst upp á bíóferð. Hvernig ég á að ná tökum á kínverskunni með því að sitja við hliðina á honum á enskri gamanmynd er mér illskiljanlegt, en þegar hann hringdi í enn eitt skiptið í kvöld (farinn að hringja úr unknown number þar sem ég var hætt að svara þegar ég sá það var hann) var mér nóg boðið og sagði honum að þetta myndi ekki ganga og vildi hann bara vinsamlegast láta mig og afbrýðissama kærastann í friði til að lappa upp á ofbeldisfullt sambandið. Held hann hafi náð þessu loksins og hættir vonandi að hringja.

Líklega hefði það dugað að sýna honum kínverska tímaritið sem er nú komið í umferð á helstu blaðsölustöndum bæjarins. Þar fer ég miklum orðum um kynferðislegt áhugaleysi mitt í garð Kínverja í vel rökstuddu máli. Vissulega féll hann undir lýsingu mína um pervisinn, naglalangan, líkamsháralausan gulverja sem ekki fer á milli mála að kæmust ekki langt með Bekku litlu.

Fékk sms frá Chrissy rétt í þessu, hún er víst nokkuð þreytt orðin líka á símhringingum Rickys en hefur ekki brjóst í sér til að vera harðorð við strákinn. Ekki svo að skilja að ég sé nokkur bredda en ég get verið ákveðin ef mér er ýtt út í horn....

Engin ummæli:

Skrifa ummæli