mánudagur, apríl 04, 2005

Ég elska....

....að geta gengið um í hlýrabol og stuttu pilsi 9 mánuði á ári
....að geta farið til Tælands, Filippseyja og Bali fyrir 10.000isk
....að geta verslað mér föt til klukkan 11 á kvöldin
....að geta prúttað um verðið á öllum sköpuðum hlutum og fá endalausar "fríar" gjafir með stórinnkaupum
....að geta talað í símann endalaust án þess að hugsa hvað mínútugjaldið sé
....að búa í öruggustu stórborg Asíu og geta gengið um áhyggjulaus á nóttu sem degi
....að vera 163cm há en samt vera talin hávaxin
....að fara á djammið með múslima, trúleysingja, gyðingi og kaþólikka sem allt eru góðir vinir mínir
....að dansa uppi á borðum og komast að því að sú við hliðina á þér á borðinu er edrú - rétt eins og þú sjálf
....að þykja stórkostlega falleg fyrir það eitt að hafa blá augu
....að þykja stórkostlega vel vaxin fyrir það eitt að hafa stór brjóst
....að mega hlaupa niður litla kínverja og snúa þá með öllum brögðum í jörðina í nafni íþrótta
....að eiga í daglegum samskiptum við fólk frá 8 mismunandi löndum
....að borða morgunmatinn úti í garði
....að vakna við fuglasöng á hverjum morgni sem og umganginn í þeim 1500 manneskjum sem búa í 100 metra radíus frá þér
....að geta alltaf farið aftur heim til Íslands ef ég vil, þarf og nenni.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli