föstudagur, apríl 15, 2005

Hjálpi mér allir heilagir!!!

Gúlps!

Símreikningurinn minn var upp úr öllu valdi þennan mánuðinn!!! Ég er nýflutt inn í íbúð með 3 öðrum og heimasíminn er með IDD service sem er sérstakur afsláttur til að hringja á milli landa. Það er mjög ódýrt að hringja til Ástralíu og Bretlands og einn daginn þegar mig langaði mikið að heyra heim en átti ekki international calling card, ákvað ég að það væri líka ódýrt til Íslands.

Var sem sagt búin að gleyma tragedíunni hér um árið þegar ég gerði sömu mistök...

...en allavega... ég hringdi heim.

Símareikningurinn var vel yfir 20þúsund kalli og tilkynnist hér með að eftirfarandi aðilar eru búnir að fá jólagjöf - og afmælisgjöf - frá mér þetta árið:

  • Bogga
  • Árdís
  • Jörgen
  • Skattstjóri Norðurlands Eystra
  • Flugleiðir

Er farin heim að spara, góða nótt

Engin ummæli:

Skrifa ummæli