Um helgina fórum við skötuhjú í útilegu á ströndina með íslenska kúlutjaldið okkar úr Rúmfatalagernum. Allir mínir vinir á Íslandi eru búnir að vera í endalausum útilegum og grillpylsustússi svo ég varð afbrýðissöm og vildi líka vera memm. Svo það var pakkað nesti í bakpokann, tjaldinu, kerti og bók. Í 32 gráðu hita fórum við með ferju yfir til Lantau eyju á strönd sem heitir Pui O. Þar var okkur úthlutað tjaldsvæði sem var afgirt með járnstólpum (engir runnar til að hólfa svæðið niður!) og á okkar 5 x 5 m svæði höfðum við meira að segja piknikkborð útaf fyrir okkur. Himinninn á tjaldinu var bundinn við járnið í staðinn fyrir að tolla í sandinum með auma tjaldhælana eina svo þetta var heldur nýtískuleg útilega.
Ekki er ég nein Elfa þó í okkur renni svipað blóð svo ég var ekki með neina svefnpoka, tjalddýnur, prímus eða annað útilegu dót - það var ekki aðalmálið heldur. Þegar upp var staðið vorum við búin að kaupa okkur sitthvora vindsængina en svo var bara sofið í bikiniinu enda 32 gráður til að verma kroppinn. Þegar ég vaknaði næsta morgun vorum við svo soðin í tjaldinu að mér fannst eins og af mér hlyti kjötið allt að detta ef einhver bara potaði í mig! Ímyndið ykkur bara ofsoðinn kjúkling - það var ég á sunnudagsmorguninn.
Það var ósköp ljúft að leka af vindsænginni um morguninn (vegna svita) og út í sjóinn sem lokkaði mig í svefn kvöldið áður en hélt vöku fyrir Juddy. Svalar öldurnar voru fljótar að skola burtu næturslefi og ég tapaði í Asna fyrir Juddy. Hann mátti því dúndra bolta í afturendann á mér eins fast og hann vildi - hans reglur eru aðeins öðruvísi en mínar. Ég vann svo í keppninni um hver ræðst best á ástvini sína og nær drekkir þeim í sjó. Juddy fór svo að veiða með kínverska tapas rétti á önglinum því við höfðum heldur ekki neina beitu en fiskunum leist líklega ekkert á rækjustöppu í hveitiböggli því hann veiddi ekki neitt. Eftir góða sandlegu tókum við ferjuna heim og knúsuðumst á sófanum yfir lélegu sjónvarpsefni. Svona ættu allir sunnudagar að vera alltaf.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli