mánudagur, ágúst 17, 2009

Nokkrar myndir frá síðustu dögum

Fórum í göngutúr á sunnudaginn og fundum þetta sæta tehús. Það er ekkert sérstaklega mikið kínverskt í mínu daglega lífi svo þetta fannst mér góður fundur og flott hús til að taka mynd af.



Þar fyrir neðan sat múnkur með gemsann sinn að sends sms til múnkavina sinna líklega.


Við fórum í snúrubíl (cable car) upp að Big Buddah sem ég hafði í hendi mér.



Sáum svona feikivel yfir flugvöllinn. Engin norður-suður braut....hvað gera þeir í hliðarvindi? Óli??



Veiðimaðurinn mikli að græja veiðistöngina áður en sui mae er sett á öngulinn. Hann veiddi ekki neitt en fann innri frið.



Ég fékk mér lúr á borðinu. Líklega engin furða að ég hafi vaknað upp með hálsríg eftir nóttina, sjáiði koddann á þessari vindsæng!!!



Sæt og sveitt



Þetta tók minn duglegi með sér í útileguna en ég sá hann aldrei glugga í hana!


Reiturinn gerður heimilislegur með þvotti.

Við sáum tvo snáka, annan dauðann og hinn skaust inn í runna um leið og ég sá hann.



Þetta eru síðustu tvær helgar sem báðar hafa verið með rólegra móti. Það er óheyrilega heitt og rakt svo maður svitnar við að hugsa. Besti tími ársins er handan við hornið, september og október en þá dettur rakastigið niður en hitinn helst áfram nokkuð þægilegur. Svo koma líka Elfa og Egill með aspassúpur í handfarangri.








Engin ummæli:

Skrifa ummæli