miðvikudagur, júní 10, 2009

Sýrusjúklíngur

Það er maður eða menn eða konur eða bæði hér í Hong Kong í augnablikinu sem dunda sér við að henda baneitraðri sýru í fólk á förnum vegi. Árásirnar eru nú orðnar þrjár og eiga sér allar stað á svipuðum stað en þrátt fyrir mikla leit, hefur lögreglunni ekki tekist að handsama neinn. Þeir henda flöskum niður af háhýsum sem svo springa og sletta sýrunni á fullt af fólki sem brennur og afmyndast af þessum viðbjóði. Þessir rað-sýrusjúklingar virðast ekki hafa neitt sérstakt til að berjast fyrir og enginn hefur tekið ábyrgð á þessu svo tilgangsleysið er algert.

Annars var það í fréttum hér í vikunni að Ísland er ekki lengur öruggasta land í heimi. Nýja Sjáland skaut okkur ref fyrir rass svo afkomendur okkar Márans ættu að eiga í örugg skjól að sækja ef þyrfti.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli