laugardagur, júní 06, 2009

I'm BAAAACCK!!!

Stutt frí frá bloggi sem hér með endar.

Margt hefur gerst síðan í síðustu færslu og óþarfi að rifja það allt saman upp í smáatriðum. Krilli kryddaði Tævan ferðina mína og fann fyrir mig Outback Steakhouse í Taipei, svo hann fékk prik í kladdann. Við hjónaleysin fórum til SuðurAfríku í brúðkaup vina okkar og langaði helst að flytja til Höfðaborgar eftir 2 yndislegar vikur þar. Ég fór til Malasíu þar sem ég var honorable guest og hélt ræðu fyrir næstum 2000 manns. Þar á eftir fór ég til Englands þar sem ég fagnaði afmælinu hennar Petí, útskriftinni hennar og nýjum breyttum lífstíl. Við lágum í baði í Bath, keyptum okkur mikið af fötum og létum eins og við værum 18 á ný.

Ég er hætt í landsliðinu og get nú sofið út á sunnudögum á meðan liðið spriklar á rúgbývelli sem einu sinni var gras á en nú er bara moldarflag. Vinnan gengur betur og betur í takt við vísitölur fjármálamarkaðarins en síðustu mánuði hef ég þurft að vinna ansi mikið lengur og meira en síðasta ár. Maður hefur þó allavega vinnu. Sumarið er komið í Hong Kong og úti skín sólin í 30 gráðu hita og sundlaugin er opin.

Ég skrifa fljótlega aftur, promise promise.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli