mánudagur, júní 08, 2009

Er du Islænding?

Ég er ekki einu sinni búin að heyra Eurovision lagið ! Veit ekki hvernig Jóhann Guðrún lítur út, man ekki eftir neinum lögum sem hún hefur sungið, kann ekki Is it true? Ég horfði ekki á Eurovision, kosningavökuna eða Mýrina. Mér finnst orðin hennar Huldu stundum skrýtin þegar hún segir skemill, dula og skýla. Er ekki einu sinni viss um að skýla sé með ypsiloni. Ég veit ekkert hver er starfsmaður á plani og man óglöggt eftir örnefnum í sveitinni heima. Er ég ekki örugglega íslensk enn?

Voðalega gott að hitta þrjá Íslínga um helgina og tala endalaust. Ég fór með þau á fjöll og einhver firnindi í leiðinni í aðeins öðruvísi útbúnaði en helgina áður þegar einn þeirra lenti í byl á Öræfajökli. Á sunnudaginn var hann bara í stuttbuxum með sólbrunnið skinn.

Við áttum sérlega skemmtilegar umræður um slangur og frasa sem eru 'in' heima. Ég veit nú að ég kæmist ekki upp með að segja 'mergjað' lengur og 'gegt kúl' er líklega alveg útdautt. Nú er allt 'þétt', flestar setningar enda á 'sko' og 'bara' er tískuorð. Annars kemst ég líklega langt á því að segja bara 'döh' við flestu. Ef ég væri fjórtán.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli