miðvikudagur, mars 04, 2009

UndraSaga

Það verður ekki af litlu frænku minni tekið að hún er undrabarn. Hún kom að sjálfsögðu í heiminn við hinar undarlegustu aðstæður, 3 vikum 'of seint' og að stórfjölskyldunni viðstaddri. Barnið sem lak út án orga (hvorki móðurs né barns) var mælt af móðurinni sjálfri, skellt á brjóstið og allt gekk eins og í Sögu. Fjórum mánuðum síðar fór hún að skríða og viku eftir það virtist sem hún væri að reyna fyrir sér í armbeygjum og annarri þolfimi. Fyrsta tönnin, sem líka birtist án tanntökuorga, kom þegar unginn var rétt svo fjögurraoghálfs mánaða! Hún er búin að fara til Íslands, Englands, Kína og Ástralíu, býr á bát og verður líklega tvítyngd innan árs.

Það væri óðs manns æði að eignast börn eftir svona sendingu svo ég hef sett tvíburana á frekari bið.

Petra fær knús dagsins, ég man enn þegar hún fæddist en síðan eru liðin mörg ár. 27.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli