mánudagur, mars 02, 2009

Hike I like

Ég stofnaði gönguklúbb fyrir um ári síðan sem heitir Hike I like og í honum er bara einn fastur meðlimur, ég sjálf. Stundum koma aðrir með mér í göngutúra og þá fá þeir temporary membership.

Ég fór í göngutúr um helgina og komst 25 kílómetra nokkurn vegin áreynslulaust! Ef frá eru talin smá óþægindi í hnénu (því sama og laskaðist í desember), þá var ég bara í fínasta formi eftir 25 kílómetra og hefði jafnvel verið til í að hlaupa svolítið lengra. Ég kom í mark á 4 klukktímum og 1 mínútu, sem er mínútu fram yfir það sem ég hafði einsett mér að ná, en ég hafði enga klukku með mér og vissi ekki hversu nálægt ég væri því að ná takmarkinu. Afsakanir...afsakanir....

Ég hef nú að einhverju að stefna á næsta ári en þetta er árlegur viðburður sem ég kannski tek þátt í á næsta ári ef ég verð ekki upptekin af tvíburunum. Engar myndir náðust af þessu afreki svo þið verðið bara að ímynda ykkur mig í hlaupagallanum, nýju ljótu skónum (sem voru svona líka frábærir!) og með sólskinsbros allan hringinn því ég fékk svo rosalega góðan hlaupalagalista frá Huldu og Strúllu!! Ég berst á fáki fráum, Við erum Beztir og RabbabaraRúna voru eins og sérvalin fyrir hæstu tindana, svo vel valin að mér fannst ég hefði átt að vera með íslenska fánann með mér á hæsta tindinum - og myndavél. En alas, í næstu ferð.

Merkilegast er það að þótt þetta séu góðum 4 kílómetrum lengra en hálfmaraþon, þá dettur mér ekki í hug að taka þátt í svoleiðis! Fjallaklifur og hlaup inni í skógi á ójöfnum jarðvegi hefur yfir sér einhvern óútskýranlegan sjarma sem sprettir á malbiki í miðborginni hafa aldrei haft.

Það fer að verða erfitt að toppa helgarnar. Eftir rúgbýmeistaratitil og langhlaup, hvað tekur við? Mér sem datt í hug að mála svefnherbergið.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli