mánudagur, desember 15, 2008

Ó Guðs vors land

Aldrei meir en nú þurfa Íslendingar að þjappa sér saman og standa keik. Þjóðarstoltið er sært og ímynd landsins er í ræsinu. Við þurfum sjálf að peppa upp landann og sameinast í söng og gleði þótt úti sé kreppa og ofsaveður. Og þá vantar þjóðsönginn.

Ég fer á marga landsleiki þessa dagana þar sem þjóðsöngvar ýmissa landa eru spilaðir og sungnir af innlifun. Sjálf stóð ég og sönglaði það sem ég gat með kínverska þjóðsöngnum þegar við spiluðum gegn Singapore síðustu helgi. Nýsjálendingar og Ástralir tókust á í HK fyrir nokkru og þjóðsöngvar beggja landa sungnir af fagmönnum fyrir 35,000 manns. Ég fékk gæsahúð og vöðvavíbring við að hlusta á og sjá stolta landsmenn beggja liða syngja af innlifun. Og ég saknaði þess íslenska.

Eftir Singapore leikinn þurfti sú franska í liðinu okkar að standa upp og syngja sinn þjóðsöng til að bæta fyrir mistök sem hún gerði í leiknum. Því næst þurfti sú þýska að syngja sinn því hún hafði líka gloprað boltanum úr höndunum á ögurstundu. Þarna var ég farin að svitna af stressi ef ég yrði kölluð upp til að syngja Ó Guðs vors land. Kannski var það sviðsótti og kannski mín eigin aulamennska en ég gat ekki, og get ekki enn, munað öll orðin í íslenska þjóðsöngnum og þaðan af síður kæmist ég óskipt frá laglínunni heldur!!! Svo ég fór á netið.

Ég hlustaði á margar útgáfur af nýsjálenska þjóðsöngnum og fékk gæsahúð í öll skiptin.
Ég meira að segja hlustaði á þann enska (rúgbrauð með rjóma á) og kann hann nú utan að.
EINA upptakan af þeim íslenska sem ég fann var heimavídeó af sauðdrukknum unglíngum sem hvorki kunnu textann né laglínuna og eftir stendur að ég kann enn ekki að syngja okkar eigið þjóðarlag!
Ég fann í vefvafri mínu margar umræður um að söngurinn væri ómelódískur og ekki raunhæft að aðrir en sérþjálfaðir söngfuglar hitti á réttu nóturnar út lagið allt. Ég held að nú þegar landið allt, heimilin og andinn íslenski er núllstilltur á ný að við ættum að taka upp lag sem þjappar okkur saman.

Nú, hverjir voru það nú aftur sem sungu 'við erum bestir' fyrir nokkrum árum? Það er glaðlegt og upppeppandi lag. Bubbi og Ísland er land þitt er of hægt og langt til að ganga. Aðrar uppástungur?

Engin ummæli:

Skrifa ummæli