Það er best að halda dampnum sem kominn er í þessi blogg skrif undanfarið og skrásetja atburði undanfarinna daga. Fyrst skal gerð veðurúttekt: Hægur andvari að sunnan, hiti á bilinu 16-20 gráður en hlýnar fram eftir vikunni. Engin úrkoma í grennd og hefur engin verið í nokkrar vikur. Sem er gott, því svalirnar eru fullar af hafurtaski.
Ég átti einn dag í Hong Kong á milli Kóreu ferðar og Singapore. Hann var nýttur til vinnu að mestu en einhverjar jólagjafir voru verslaðar og aðrar upphugsaðar. Það er svo merkilegt að þegar ég flýg er ég algerlega óhæf til nokkurs nema svefns, áts og að horfa á myndir. Ég tek alltaf með mér tölvuna um borð, einset mér ferð eftir ferð að nýta nú klukkutímana í vinnu, svara gömlum tölvupóstum sem enn liggja rotnandi í to-do boxinu mínu og svo framvegis en ég algerlega núllstillist við flugtak og helst vil bara sofa. Ég neita að gera nokkuð sem krefst einbeitni eða frumlegrar hugsunar og er þetta ástand svo krónískt orðið að í síðustu ferð, heim frá Singers, horfði ég frekar á Pretty Woman heldur en Daniel Pearl myndina því ég vissi að PW væri auðveld sápa sem ég hefði horft á áður en Daniel Pearl væri tragísk og erfið meltingar. Það hefði gert útaf við mig að þurfa að horfa á 2 klukkutíma af Angelinu Jólí trampandi yfir hlutverkið hennar Jennifer minnar með þessar hroðalegu krullur í hárinu líka.
Singapore var að venju ljúf. Skortur á leigubílum er viðvarandi vandamál sem kemur við kaunin á mér í hvert sinn en ég náði 14 fundum á 2 dögum sem ég verð að telja gott. Seldi eins og stórkaupmaður á jólavertíð og tryggði mér feitan jólabónus. Þá kom ég beint heim í jólapartý vinnunnar þar sem ég fékk tvö verðlaun fyrir 'afrek á árinu'. Annað þeirra var 'most drunk at a corporate event' sem var víst Landsbankapartýið en það verð ég að taka þeirra orð fyrir því minnið bregst mér. Af myndum að dæma var ég mest á dansgólfinu og þyki hafa sýnt ákveðna hæfileika í swing og djæv. Foreldranna vegna skal það þó tekið fram að ég hafði ekki drukkið í 7 vikur og hafði sparað mig sérstaklega fyrir þetta kvöld. Ég hélt reisn minni allt kvöldið og komst standandi heim á skikkanlegum tíma - ég var bara svona voðalega glöð sem þótti vert að verðlauna!
Ég hef nú 4 daga með deginum í dag meðtöldum til að kaupa jólagjafir, skrifa jólabréfið, senda jólakort, pakka niður og klára að ganga frá íbúðinni þar til ég fer til Nýja Sjálands og Ástralíu í frí. Best að hætta því að vafra á netinu og blogga um ekki neitt, nóg að gera!
Knús yfir höf, Bekka
Engin ummæli:
Skrifa ummæli