föstudagur, maí 04, 2007

Uppfull af hor og ómöguleg öll

Ég snörla út í eitt þessa dagana, og næturnar. Sef lítið, svitna mikið. Samt með gæsahúð. Bryð panadol cold and flu, komin langt yfir leyfilegan dagsskammt. Þetta er árlegur viðburður þegar hitastigið hækkar upp yfir 23 gráður í Hong Kong og loftkælingin tekur öll völd. Aumingja ég.

Hulda er komin í partýgírinn og ætlar á ball í kvöld, heldur sig vera að fara með mér. Ég er að vona að hún sjái þetta og þar með aumur á mér...gefi mér frí. Það er ekki oft sem Bakkus heimsækir Huldu og ekki mig en hún verður líklega að djamma bara með Bjalla litla sem hefur verið endurheimtur frá Íslandi og öðrum hlutum Evrópu. Ég verð í bælinu.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli