Þessi elska bókaði mig í söngtíma. Eins og margir af mínum vinum vita, þykir mér afar gaman að syngja og geri það gjarnan í einrúmi sem og fjölmenni. Því miður var mér ekki úthlutað heilum skammti af hæfileikum í þessa átt og ekki virðist tónlistagáfum fjölskyldunnar hafa verið raðað niður á réttlátan hátt. Pabbi söng okkur gjarnan í svefn á kvöldin, spilaði þar á milli á orgelið, mamma hummar gjarnan við húsverkin og Petra systir spilar á píanó eins og hún hafi fæðst með flata fingur. Sem hún gerði. En einhvern vegin er það nú samt svo að fólk ýmist kímir eða krypplar ennið þegar ég syng hæstu tónana og ég skal viðurkenna hér og nú að ég gerði upptöku af eigin söng sem ég átti erfitt með að hlusta á til enda. Jeeeg dreeeg seeeeimeeenn og þykir frekar flámælt á flestum sérhljóðum, dett inn og út úr laglínunni og fleira gerist sem er ekki svo gott. Svo nú skal allt breytast til batnaðar. Ég er komin með vocal trainer sem ætlar að gera úr mér fagurgalandi fugl sem getur sungið Ave Maria og allskonar aríur.
Hann er doldið gay og doldið fyndinn og doldið mikið fyrir að hrósa mér þegar ég á það ekki skilið en það er voðalega gaman að læra söng og best þegar ég fæ að syngja Robbie. Ég er aðallega bara búin að syngja Amazing Grace og læra að þindin er töfratæki en ég er samt alltaf búin með allt loft áður en laglínan endar - sem hann ætlar að laga.
Hægt er að bóka mig í hljómsveitir frá og með næsta hausti, ég hef það fyrir víst að ég tek mig vel út á sviði. Peace out
Engin ummæli:
Skrifa ummæli