þriðjudagur, maí 08, 2007

Crackberry

Blackberry er hreinlega að buga mig. Þetta er eins og að eiga barn, endalaust pípandi og titrandi, á degi sem nóttu. Ég er að niðurlotum komin eftir svefnlausar nætur því að þó svo ég sé nú farin að setja hann á silent, vakna ég nokkrum sinnum á nóttu hverri til að athuga hvort það séu komin skilaboð (kannski um að setja stóra hamarinn í gang, maður veit ekki). Rétt eins og með börn sem sofa á sínu græna, mæður spænast víst á fætur í massavís til að athuga hvort þau andi ekki. Þetta er eins með mig og crackberryinn minn, ég er húkkt.

ps. þeir sem ná þessu með stóra hamarinn gefi sig fram.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli