mánudagur, desember 12, 2005

Ofnæmi

Nú þegar kólnar í veðri vilja kettirnir sofa uppí og annar er svo kræfur að sofa undir sænginni mín megin. Ég gæti trúað að ég sé með ofnæmi fyrir þessum nánu samskiptum því ég vakna með kláða í augum og nefrennsli sem bráir svo af mér þegar líða tekur á dag. Fór því í apótekið, bað um antihistamines.

Ah, sagði stúlkan og dró mig að Panodil hillunni og spurði hvort ég hefði hausverk. Neinei, bara ofnæmi sagði ég og sagði a n t i h i s t a m i n e s aðeins hægar en í fyrra skiptið. Hún horfði á mig með stóru brúnu augunum sínum og ferlegum tanngarðinum, deplaði og spurði á fínni ensku : Foot creme?

Hva?? Ég bara klóraði mér í augunum og saug upp í nefið, gekk út.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli