mánudagur, desember 12, 2005

Jólaball og happdrætti

Ég fór á jólaball breska sendiráðsins á föstudaginn. Fékk aðgöngumiða sem mér var sagt að gilti sem happdrættismiði líka, svo ég lagði númerið á minnið og varð voða spennt þegar jólasveinninn fór að draga úr öllum flottu vinningunum. Þegar hann var komin hálfa leið í gegnum lesninguna kom í ljós að allir höfðu keypt sérstaka happdrættismiða og ég átti því enga von á neinum vinningi.

Rann þá upp laugardagurinn, næst var jólaball hjá rúgbýklúbbnum mínum. Ég fór í mitt fínasta púss og setti á mig jólasveinahúfu í tilefni dagsins. Keypti 15 happdrættismiða og einsetti mér að vinna fyrstu verðlaun. Sem ég og gerði, ferð fyrir tvo til Puerta Gualera í Filippseyjum með flugi, hóteli og 5daga Padi Open Water köfunarkúrs. Alveg hrikalega fínt!
Þá komu skilaboðin um að Unnur Birna hefði verið kosin Ungfrú Heimur og þá var nú aldeilis fínt að vera íslensk kvensa í karlafans! (eins og gefur að skilja er rúgbýklúbbur aðallega skipaður karlmönnum með testósterónlevel í hærri kantinum). Ég var farin að trúa því sjálf undir lokin að ég hefði persónulega haft eitthvað með það að gera að hún fékk kórónuna.
Flennistór mynd af henni var svo á forsíðu SouthChinaMorningPost í gær og íslenska hjartað þrútnaði á ný.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli