nálgast.
Venjulega kemur yfir mig jólaþungi og voðaleg sorg. Nú er ég öll önnur og hlakka mikið til jólanna enda í fyrsta skipti í 8 ár sem ég hef einhvern til að eyða þeim með. Ekki svo að skilja að ég hafi alltaf verið ein, en það er öðruvísi að halda sín eigin jól með þeim sem manni er næstur.
Við skötuhjú erum búin að kaupa miða til Sri Lanka. Þar ætlum við að eyða 24ða a la Rebekka með möndlugraut og pökkum. Jarrad er búinn að lofa að halda á ferðatöskunni með jólagjöfunum, fram og til baka frá Sri enda heimta ég að taka þær með og opna að kvöldi 24ða des. Jóladegi eyðum við í múlsímsku brúðkaupi hjá Ranga Ranga og brúði hans. Ranga Ranga er vinur Jarrads úr háskólanum í Nýja Sjálandi og brúðkaup hans dregur að fleiri vini frá NZ sem verður ábyggilega gaman að hitta. Ég veit ekki alveg á hverju er von en Jarrad fór á síðasta ári í annað brúðkaup í þessum vinahóp og var það í Pakistan. Á hverjum degi kom sendiboði með föt fyrir alla gestina sem þeir áttu að vera í þann daginn og þess vegna á Jarrad búnka af pakistönskum mussum. Fyrir brúðkaupið sjálft fengu þeir allir Alladínskó og voru því eins og bjánar allan daginn. :)
Eftir brúðkaupið hefur spúsi minn skipulagt strandarferð til tveggja daga en það er stefnan að vakna á fallegri strönd á afmælisdaginn minn, þ.e.a.s. ef við finnum auðan blett einhvers staðar. Það er hætt við að flestar strendur nálægt Colombo verði uppfullar af minningarathöfnum um tsunami flóðbylgjuna frá því í fyrra. Til að borga fyrir herlegheitin er ég víst að vinna allan gamlársdag, nýjársdag og vörutalningardaginn. O sei...........
Engin ummæli:
Skrifa ummæli