föstudagur, nóvember 18, 2005

Léttari

Jú, ég er að léttast. 6 kíló farin og fleirum skolar niður að sjó í dag og í gær eftir harðgera magakveisu. Er að verða komin niður í Lundarvigt. Voða gott.

Stend í flutningum. Komin að mestu inn hjá Jarrad sem enn sem komið er, er þægilega ómeðvitaður um innflutninginn. Ég kannski býð honum í innflutningspartýið. Búin að leigja herbergið mitt út í Norður Púnkti, þó með aðgang að því enn sem komið er. Við erum búin að fá loforð um stórkostlega íbúð í mars sem er með gríðarlega flott útsýni og stærðarinnar svölum. Hún leigist venjulega út á um 350þús kall á mánuði (já, íslenskar krónur) en við gerðum góðan díl. Borgar sig að hafa lögfræðing með í samningsgerðinni.

Mikið að gera undanfarið og lítur út fyrir áframhaldandi velgengni í bísnes. Vantar nafn á ráðningarskrifstofuna mína svo allir kreatífir mega láta í sér heyra. Samningaviðræður á viðkvæmu stigi um kaup á næsta fyrirtæki. Flutti inn vinnuafl að utan og er sú komin á kaf í vinnu nú þegar. Allir ánægðir.

Spruttum á fætur snemma dags síðustu helgi og drógum með okkur góðan skara í 5km hlaup eftir gömlu flugbrautinni. Starri var með yngstu keppendunum og stóð sig eins og hetja þótt stundum hefði verið gott að hvíla sig á Bekkubaki - þó aldrei nema í nokkra metra í einu. Við vorum langt frá því síðust í mark og erum afar montin vitanlega.

Best að fara að taka upp úr síðustu töskunni, ég er nú búin að grisja fataskápinn Jarrads og ekki alveg viss um að þetta samband hefði lifað lengi hefði ég séð suman hroðann sem þar er að finna. Bjarki, annálaður snyrtipinni, hefur boðist til að kenna manninum að versla föt. Mun líklega þurfa að taka hann á orðinu með það, sérstaklega þegar Jarrad uppgötvar að rósótta skyrtan hans og bleikleitu kakíbuxurnar eru horfnar.

Sjáumst á settinu. Bex

Engin ummæli:

Skrifa ummæli