Var að koma heim eftir rúgbýleik dagsins, nokkuð góður leikur í dag. Ég dó næstum úr hita, endalausir sprettir í 26 gráðum eru ekki góðir fyrir mig. Í síðasta leik spurði þjálfarinn minn hvort hann ætti að kalla á lækni. "Akkuru?" "You have very strange colour" Ég var fjólublá af áreynslu. Hann taldi víst að ég félli niður þá og þegar með hjartabilun eða sprungna æð við heila.
Einhver var að spyrja mig hvar ég byggi núna. Ég er altso flutt út frá Katie. Þegar ég kom aftur til Hong Kong var vinkona mín búin að vera í herberginu mínu í rúma viku og ég sagði henni bara að vera þar áfram þar sem ég ætlaði tímabundið að búa annars staðar þar sem meira pláss væri fyrir alla gestina mína. Síðan liðu næstum 4 vikur, engir gestir komu og vinkonan orðin svo heimakær í mínu gamla rúmi að hún vill hvergi fara. Ég bý því með Trevor eitthvað áfram þar til þetta leysist. Ég er í stærra herbergi og með ofn í þessari íbúð og eigið baðherbergi. Það er voða fínt. Þá er sundlaug á fínasta stað sem fylgir og ég búin að merkja mér einn sólbekkinn varanlega. Inngangurinn er marmarasleginn og glansandi, glaðlegir húsverðir sjá um að öryggiskröfur mínar séu uppfylltar og lyftutónlistin er hressandi. Ég er uppi á 22. hæð með útsýni yfir miðbæinn. Allt saman í besta lagi semsagt, nema bévítans leigan. Hún er heldur há, líklega væri ég í 3ja hæða einbýlishúsi fyrir sama pening á Íslandi. Ég hef því bara efni á að hita upp núðlur í ofninum mínum.....sniff. |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli