mánudagur, október 25, 2004

Lítið í fréttum svo sem, helgin var fín. Var róleg heima á föstudagskvöldið og kláraði greinina í Ský sem ætti að koma í næsta blaði. Laugardaginn var leikur eins og fram kom í fyrra bloggi, ég er nett marin á miðjum handlegg eftir að ein stappaði á mér á takkaskónum. Ég var skömmuð fyrir að tækla þessar litlu kínversku of hátt, ég tók þær óvart hálstaki þótt ég beygði mig mjög mikið í hnjánum. Þær eru svo smáar þessar elskur.

Á sunnudaginn var í mér fítonskraftur og ég kom með margar góðar hugmyndir sem flestar innihéldu að spila spil á mismunandi stöðum, s.s. við sundlaugina, á ströndinni, í garðinum, á næsta bar, en þunnildin sem með mér héngu nenntu engri spilamennsku. Í staðinn fórum við á markaðinn að versla hallóvín búninga, ótrúlega gaman. Ég keypti engan búning en mátaði marga og verslaði 4 belti, skartgripi og tvenn sólgleraugu. April verður magadansmær, Chrissy verður ljónynja. Minn er leyndó....

Engin ummæli:

Skrifa ummæli