Ok, Eyjamyndir loksins komnar inn....
Er með börnin um helgina, þau eru uppspretta mikillar fyndni. Þau vita oft ekki af því sjálf sem er fyndið í sjálfu sér, og stundum móðgast þau ef maður hlær. Þau veltu því fyrir sér þegar ég kom til HK eftir sumardvölina á Íslandi hvort ég fengi bakpoka með litabók og fleiru frá Virgin. Þeim finnst ég hvorki barn né fullorðin, svo þau voru bara svona að velta því fyrir sér í hvorn flokkinn flugfélögin settu mig.
Eins og önnur börn biðja þau gjarnan um að fá eitthvað gefins, mat og gjafir og blanka frænkan ber stundum við peningaleysi. Starri bað mig um að kaupa fyrir sig 3ju gleðimáltíðina í röð (Happy Meal @ McDonalds) og Bekka sagði nei, það væru engir peningar eftir. "Beeeekka, geeeerrrðu það...! Sjáðu!!! Þarna er Banki!!" Málið leyst.
Freyja neitaði að fara á siglinganámskeiðið í morgun. Grét og barði í vegg, þetta væri heimskulegt námskeið því hún væri bara á level 2 og fengi því ekkert að stýra sjálf. Hún vildi fara beint á level 3 eða 4 svo hún fengi að gera eitthvað annað en að horfa á kennarann. Þegar ég útskýrði fyrir henni að nýgræðingar í faginu fengju ekki að stökkva beint upp á masterslevel setti hún upp stút og sagðist bara ekkert ætla að læra að sigla. "Ég verð bara ekkert svona sailingperson!" Og hana nú!
Verð að stökkva, meira fljótlega. Happy Halloween!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli