miðvikudagur, júlí 23, 2008

Vanafesta eða árátta?

Þegar Subway opnaði á Akureyri um árið trítlaði ég mér niður í bæ til að taka út nýjasta ruslfóðrið á markaðnum. Ég keypti mér sex tommu túnfisksbát í hvítu brauði með auka mæjónesi og soldið af salti. Þetta þótti mér ógurlega góður matur og í næstum heilt ár pantaði ég mér alltaf sama bátinn enda óþarfi að breyta út frá því sem sannað er að seður mann.

Það var ekki fyrr en löngu seinna sem ég ákvað að prófa eitthvað nýtt og hætta þannig á að eyða rúmum þrjúhundruð krónum í eitthvað sem ekki var gott. Nú gætu einhverjir haldið að ég, eins og svo margir aðrir, hafi bara ekki lagt í að fara í gegnum þann aragrúa af valmöguleikum sem Subway stelpur og strákar ryðja upp úr sér til þeirra sem eru í vafa um hvað þeir vilja en það var nú öðru nær, ég er bara svona loyal. Vanaföst.

Hér í bæ er það Outback Steakhouse. Þar hef ég bara einn aðalrétt smakkað og hef þó farið þangað með reglulegu millibili í 5 ár svo upp úr krafsinu hef ég fengið VIP kort gefins. Ég fæ mér einstaka sinnum salat, franskar eða súpu (alltaf þá sömu) en annars fer ég á Outback til að borða Alice Springs Chicken. Þegar ég er í Kóreu, fer ég á Outback og borða Alice Springs Chicken. Þegar ég er í Malasíu, fer ég á Outback og panta Alice Springs Chicken.

Ég áttaði mig á eigin áráttu í 12 tíma flugferð í gær. Frá London til Hong Kong var í boði, on demand, einar 12 glænýjar bíómyndir og ég hafði bara séð eina þeirra áður. Það voru um 50 mismunandi sjónvarpsþættir í boði, 30 heimildamyndir, 20 teiknimyndir, aragrúi leikja. Og hvað gerði ég? Jú, ég horfði á 3 þætti af Friends, 2 þætti af Greys anatomy, einn af Sex and the City og einn House. Alla þættina hafði ég séð áður!!! Þegar öllu þessu áhorfi var lokið ákvað ég að eyða dýrmætum tíma mínum þar sem ég var dæmd til að sitja föst á milli kommúnista og sofandi hjásvæfunni í að horfa á eina nýja mynd sem ég hafði aldrei horft á áður. Hún reyndist ágæt en til að vera örugg valdi ég fyrirsjáanlegustu myndina af þeim öllum.

Er þetta vanafesta eða árátta?

Engin ummæli:

Skrifa ummæli