þriðjudagur, júlí 29, 2008

Íslandsferð

Íslandsferðin var yndi, stutt sem hún var. Elfa frænka prjónaði peysu á dengsa litla og hann leit út eins og íslenskur hestamaður á leiðinni á slútt. Veiðivötn buðu upp á íslenska lárétta rigningu, rok og þrjá fiska á mann. A.m.k.

Flightseeing yfir Gullfoss og ógjósandi Geysi, Þingvelli og allt þar á milli stendur óneitanlega upp úr, útsýni yfir til Vestmannaeyja og út yfir Langjökul ef maður teygði sig. Juddy litli fékk að stýra, Óla varð óglatt, 9mánaða daman Fura svaf af sér herlegheitin og Elfa fékk afmælisgjöfina sína, seint eins og venjulega.

Við átum á okkur gat og erum nú eins og stöffaðir kalkúnar en æfingar eru hafnar á ný - þó með aðeins minni þyngd og styttri hlaupum. Ég er strengd og stirð til verka.

Sambandið stóðst þrekraunina og hann er staðráðinn í að mæta á ný í veiði með Malla frænda, Eggerti og Hlyni hennar Petíar. Rétt eins og hjá öðrum matgóðum gestum var hápunktur ferðarinnar steikurnar hjá Elfu frænku en hvalkjötið (hrátt sem steikt) sækir fast að. Kannski síðast hafi hún serverað Kjarnafæði og því fór sem fór?

Maður spyr sig.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli