Komin til Síngapúr og enn eitt mikilvægt plássið farið úr passanum eftir vegabréfaskoðun í dag. Hef nú pláss fyrir ca. 3 stimpla í viðbót og vonandi dugar það þar til 12ta mars þegar ég kem til Íslands í endurnýjunina. Ég á eftir að fara til 5 landa áður en ég kem til Íslands en vonandi þarf ekkert að stimpla í Evrópu. Annars er ég búin að ráða út úr þessum vegabréfavanda. Talaði við hæstráðanda íslensku vegabréfayfirvaldanna og saman komumst við að samkomulagi sem einfaldaði Íslandsförina mikið og róaði mitt geð. Hún er góð kona, hún Njarðvíkur-Elín.
Hér hellirignir í augnablikinu í augljósri andstöðu við sólbrunann sem ég þjáist af. Fór í fyrstu bátsferð ársins á sunnudaginn í tilefni afmæli Katie og náði að brenna þótt það hafi bara verið 25ti febrúar. Bikiniveður og yndislegur dagur í alla staði. Katie mín er orðin 35 ára þótt hún líti ekki út fyrir að vera deginum eldri en 25, það gerir líklega stólpípumeðferðin og annað heilsubætandi sem hún hefur eytt öllum aurunum sínum í.
Ég flýg frá HKG til Parísar 6ta mars en lendi á Íslandi 10unda ef allt gengur upp. Fer úr landi á þriðjudagsmorgninum 13anda, væri gaman að sjá framan í fólk á laugardagskvöldinu 10unda ef tími gefst til.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli