fimmtudagur, mars 23, 2006

Síngapúr!

Þriðjudagskvöld og við systur í bíó, seinnihluti Pride and Prejudice. Hulda hallar sér að mér og hvíslar "ég kemst til Singapore á föstudaginn, kerlíngin fæddi í morgun. Finndu, það er enn legvatnslykt af höndunum á mér."

Disgusted jafnvel þótt ég hafi enga lykt fundið varð ég samt glöð því ég hef reynt að draga þá elstu með mér í skóinnkaupaferð til Singapúr síðan hún átti afmæli í september. Því var það snemma næsta morgun að flugið til Síng var staðfest fyrir tvo, síðar þrjá þegar Bjarki bættist við.

Saman fórum við því þrjú með spilastokk í hálftómum handfarangursbakpokunum og sáum fram á indælan fjölskyldutíma í útlöndunum. Event managerinn var klókur sem aldrei fyrr en ég hafði haft samband við hótelið sem við gistum á í næstu ferð (er að fara með 20 manna hóp til Singapore um páskana) og sagt þeim að ég væri að koma til að taka út slotið. Við komuna beið okkar bréf þar sem við vorum vinsamlegast beðin um að þiggja frítt upgrade á betra herbergi og kvöldmat í boði hússins með víni. Hótelið var ágætt, maturinn góður og allir glaðir.

Mikið var verslað og líklega mest á Bjalla litla sem naut þess að hafa tvo tískuráðgjafa með í för. Hulda þó aðal auðvitað og ekki tekið mark á júnior-ráðgjafanum þegar ég mótmælti harðlega kaupum á ósmekklegum buxum í óræðnum lit á brósa.
Allir versluðu mikið, átu meira, sváfu takmarkað, sóluðu sig sama og ekkert, stóðu sig vel.

Góð ferð í alla staði, tusind tak til meðferðamanna.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli