miðvikudagur, apríl 18, 2007

Tengdó


komu og fóru. Indælt fólk úr nýsjálenskri sveit, hann hreinræktaður mári, hún af írskri og márískri blöndu. Ekki dugðu færri en 6 fylgdarmenn og konur, systir Justins, föðursystir, frænka, frændi, æskuvinur og kærastan hans. Þrjú hertóku íbúðina mína, öðrum var dreift yfir hamingjudal. Ég fékk hægri hliðina í bóli bónda. Við tókum þennan venjulega rúnt upp til Shenzen, sendum þau til Macau, fórum á markaðinn og skruppum í búðir. Þau horfðu á úrslitaleikinn í karladeildinni í rúgbý þar sem Justin og hans lið sigraði Aberdeen, liðið mitt. Ég hafði mig hæga á leiknum og hvatti hvorugt lið útvortis.

Justin tryggði sínum mönnum sigurinn og í blöðunum daginn eftir var fyrirsögnin á þessa leið:
'Heroic Temara wins it for Valley!' Aubrey, pabbi Justins, var hrærður að sjá fjölskyldunafnið upphafið í blöðunum og keypti tvö eintök til að taka heim. Held hann hafi stolið mínu eintaki líka helvískur.....

Engin ummæli:

Skrifa ummæli