fimmtudagur, mars 01, 2007

Kúkað í Kóreu

Hvergi er betra að hægja sér en í Kóreu. Þar eru klósettin með entertainment system og stórskemmtilegum skolunarmöguleikum. Vandamálið er vitanlega það að allt er á kóreysku og ég veit þess vegna ekki hverju ég á von á þegar ég prófa alla takkana. Þessi rauði er stórvarasamur eins og rauði liturinn ætti að gefa til kynna en ég er takkaóð og stóðst ekki freistinguna. Upp úr klósettinu stóð bunan af vatni, samblönduðu eigin úrgangi. Beint á hurðina á móti og klóstettkonan æjæjaði fyrir utan hurðina. Ég hélt fast um töskuna mína og passaði businessskjölin mín. Þakkaði fyrir að vera staðin upp þegar vatnið byrjaði að streyma en slíkur var krafturinn að prívatið hefði beðið hnekki ef ég hefði enn setið niðri.

Ljósgulur gefur manni ylvolgt vatnsnudd um allan botninn svo erfitt er að rífa sig burt úr sælunni. Leiðinlega mikill pappír sem fer í að þurrka sér en þá eru hæg heimatökin að ýta á næsta takka sem gefur blástur.

Best eru þó seturnar. Þær eru upphitaðar og fátt er betra en að hlamma sér á eina slíka þegar úti eru mínus 10 og vindur í ofanálag.

Næsta klósettfærsla verður um náðhúsið í Nassasúak, Grænlandi.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli