mánudagur, nóvember 01, 2004

Fékk verðlaun fyrir búninginn minn á laugardaginn, vann flösku af rauðvíni og vil meina að ég hafi nú bara verið hænufeti frá Tælandsferðinni sem var í 1stu verðlaun. Kannski á næsta ári...

Annars leit ég út um gluggann í morgun og hélt það gæti verið heldur kalt úti. Fór því í ermalangan bol. Það reyndist óþarfi, ég er nú svitnuð. Bara lovlí að geta farið út á stuttermabol á fyrsta degi nóvembermánaðar. Það var nú allt sem ég vildi segja í dag.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli